Kröftugur jarðskjálfti varð á Reykjanesskaga klukkan 17.06. Skjálftinn varð um tvo km norðaustur af Fagradalsfjalli og var 4,2 að stærð.
Skjálftinn fannst vel á öllu Reykjanesinu, sem og höfuðborgarsvæðinu.
Um er að ræða sjötta skjálftann sem mælist 3 eða stærri í jarðskjálftahrinunni á Reykjanesskaga frá því í hádeginu í dag.