Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og ráðherra jafnréttismála, hringir í dag opnunarbjöllu markaða fyrir jafnrétti. Bjölluhringingin er hvatning til allra í einkageiranum til að vera kyndilberar jafnréttis og mannréttinda.
Hér að neðan má fylgjast með viðburðinum sem hefst klukkan 9:15.
Viðburðurinn er haldinn af Kauphöll Íslands í samstarfi við UN Women á Íslandi, Félag kvenna í atvinnulífinu og Samtök atvinnulífsins. Hann er haldinn í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna. Kauphallir í yfir 90 löndum í samstarfi við UN Women hringja bjöllu fyrir jafnrétti á þessum degi, þann 8. mars.