Fæddir 1942 og eldri bólusettir

Bólusett verður í Laugardalshöllinni.
Bólusett verður í Laugardalshöllinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heilsugæslan mun bjóða öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu sem eru fæddir 1942 eða fyrr Covid-19-bólusetningu í Laugardalshöllinni á morgun, þriðjudag. Beðist er velvirðingar á því að í fyrri útgáfu var sagt fæddir 1949 en hið rétta er 1942.

Boð um bólusetninguna hafa verið send með sms-skilaboðum og fólk er beðið að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram.

Þeir sem eru á þessum aldri en hafa ekki fengið sms-skilaboð geta komið í Laugardalshöllina milli kl. 9:00 og 15:00 annan hvorn daginn og fengið bólusetningu að því er fram kemur í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 

Allir eru beðnir að mæta með skilríki og minnt á grímuskyldu.

Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Því er fólk beðið að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða.

Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. Þeir sem ekki þiggja bólusetningu eru beðnir að láta vita á bolusetning@heilsugaeslan.is eða í síma 513-5000.

Frétt mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert