Slæm veðurspá á morgun

Kort/Veðurstofa Íslands

Hvessir úr norðri í kvöld og nótt og snarpir vindstrengir við fjöll í flestum landshlutum á morgun, einkum um landið vestanvert. Einnig má búast við hríðarveðri nokkuð víða, sér í lagi á fjallvegum en úrkomulítið sunnanlands samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

„Í dag er útlit fyrir hægt vaxandi norðaustanátt, strekkingsvindur nokkuð víða síðdegis. Með fylgir úrkomusvæði og má búast við rigningu eða snjókomu á austurhelmingi landsins, en þurrt að kalla vestanlands. Hiti víða nálægt frostmarki en að 5 stigum sunnanlands.

Í kvöld og nótt bætir síðan meira í vind og á morgun er víða gert ráð fyrir allhvassri norðanátt en hvassviðri eða stormur um landið norðvestanvert síðdegis. Á morgun verður væntanlega úrkomulítið sunnanlands, annars víða slydda eða snjókoma, en rigning austast á landinu. Hiti kringum frostmark, en frostlaust með suður- og austurströndinni.

Á morgun þarf því að gera ráð fyrir snörpum vindstrengjum við fjöll í flestum landshlutum, einkum um landið vestanvert. Einnig má búast við hríðarveðri nokkuð víða, sér í lagi á fjallvegum, en úrkomulítið sunnanlands.

Það væri hyggilegt fyrir ferðalanga að hafa veður morgundagsins í huga þegar ferðalög eru skipulögð. Eftir hagstæða tíð undanfarið minnir veturinn á sig. Á Íslandi er mars flokkaður sem vetrarmánuður enda sýna veðurmælingar að hann sker sig ekki frá hinum vetrarmánuðunum þremur (desember, janúar og febrúar).Gengur í norðaustan 8-15 m/s síðdegis í dag. Rigning eða snjókoma á austurhelmingi landsins, en þurrt að kalla vestanlands. Hiti víða nálægt frostmarki, en að 5 stigum sunnanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Norðan 10-18 m/s en 15-23 síðdegis um landið norðvestanvert. Úrkomulítið sunnanlands, annars víða slydda eða snjókoma, en rigning austast á landinu. Hiti kringum frostmark, en frostlaust með suður- og austurströndinni.

Á fimmtudag:
Norðaustan 5-13 en 15-23 norðvestan til á landinu. Rigning eða snjókoma norðan- og austanlands, en þurrt að mestu sunnan til. Hiti 0 til 5 stig en vægt frost á Vestfjörðum.

Á föstudag:
Norðaustan og norðan 8-15. Snjókoma norðan til á landinu, rigning austast, en þurrt sunnan heiða. Hiti breytist lítið.

Á laugardag og sunnudag:
Norðlæg átt og él norðanlands með vægu frosti, en yfirleitt þurrt sunnan til á landinu og frostlaust að deginum.

Á mánudag:
Líkur á vaxandi suðaustanátt með úrkomu sunnan- og vestanlands, en léttir til fyrir norðan og austan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert