Enginn gosórói en stórir skjálftar

Yfirfarnir jarðskjálftar við Fagradalsfjall.
Yfirfarnir jarðskjálftar við Fagradalsfjall. Kort/Veðurstofa Íslands

Í nótt mældist skjálfti af stærð 5,1 kl. 03:14 í suðvesturhorni Fagradalsfjalls og fannst hann á Reykjanesskaga, höfuðborgarsvæðinu, austur á Hellu og norður í Búðardal. Alls hafa um 700 jarðskjálftar mælst frá miðnætti, þar af 20 yfir 3 að stærð, samkvæmt upplýsingum frá jarðvársviði Veðurstofu Íslands.

Kort/Veðurstofa Íslands

Virknin, líkt og i gær, er að mestu bundin við suðurhluta Fagradalsfjalls en nokkrir skjálftar mældust rétt norðaustur af Grindavík í nótt, sá stærsti 3,9 kl. 04:35 og örfáir við Trölladyngju. Enginn gosórói hefur mælst, né afgerandi breytingar í GPS-gögnum.

Í gær mældust um 2.900 jarðskjálftar á Reykjanesskaga, sá stærsti 4,0 að stærð kl. 23:01 í gærkvöldi. Í gærmorgun upp úr kl. 5 jókst virknin eftir rólegan sólarhring þegar órói greindist í suðurhluta gangsins. Í kjölfarið varð virknin aðallega bundin við suðurhluta Fagradalsfjalls.

Yfirfarnir jarðskjálftar á Reykjanesi.
Yfirfarnir jarðskjálftar á Reykjanesi. Kort/Veðurstofa Íslands

Um kl. 18:45 í gærkvöldi jókst tíðni smáskjálfta á svæðinu. Samfara þeirri virkni mældust nokkrir skjálftar um og yfir 3 að stærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert