Fleiri smit þýði ekki ný bylgja

Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, var á …
Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, var á meðal gesta í Hörpu síðasta föstudag. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, segist vel trúa því að fleiri kórónuveirusmit komi upp í tengslum við þau innanlandssmit sem orðið hafa undanfarna daga, en leggur áherslu á að það þurfi ekki að þýða að hafin sé ný bylgja.

„Það þarf ekki að þýða það hérna lengur. Smitrakningin okkar er það góð, af því að hér er þetta meira í nærumhverfinu og það er auðveldara að ná í fólk. Hún virkar alveg ótrúlega vel,“ segir Thor.

Thor telur fólk einfaldlega vera að vanda sig meira núna en þegar önnur bylgja kórónuveirunnar fór af stað síðasta haust. „Við vorum með allt miklu opnara þá og vorum í raun og veru ekki í neinni baráttu heldur héldum við að þetta væri bara alveg niðri. Svo dreifðist hún bara mjög hratt,“ segir Thor.

Gott hugarfar í Hörpu

Þó að vissulega séu samkomur ekki í lamasessi um þessar mundir, segir Thor að helsti munurinn felist í hugarfari heildarinnar um að taka þátt í baráttunni.

Grímuskylda og aðrar sóttvarnir voru hafðar í heiðri í Hörpu …
Grímuskylda og aðrar sóttvarnir voru hafðar í heiðri í Hörpu um helgina. mbl.is/Árni Sæberg

800 manna tónleikar í Hörpu eru þannig að mati Thors vel gerlegir á meðan vilji fólks stendur raunverulega til þess að gæta sóttvarna. Sjálfur var hann staddur á tónleikum Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara í Hörpu á föstudaginn, þar sem síðar kom í ljós að smitaður einstaklingur var á meðal gesta.

„Það var dálítið merkilegt, að þetta var alveg hægt. Þau fylgdu öllum reglum og ég gat ekki séð annað en að gestirnir gerðu það líka. Fólk var einfaldlega að fara varlega og var með grímurnar sínar og því fannst mér þetta bara mjög jákvætt,“ segir Thor.

Sóttvarnirnar hafi sannað gildi sitt á staðnum, enda ekki fengist séð að hinn smitaði, sem líklega var með breska afbrigði veirunnar, hafi smitað annan á tónleikunum. Sagt hefur verið frá því að viðkomandi hafi haldið kyrru fyrir í sæti sínu á tónleikunum og hvorki farið á salernið né fram í hléi.

Gríman kann einnig að hafa komið í veg fyrir smit og Thor bendir í því samhengi á að gildi grímunnar sé æ óumdeildara á meðal vísindamanna og telur vel þess virði að Íslendingar haldi sig við grímurnar þar til fleiri hafa verið bólusettir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert