Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur ákveðið að aflýsa fyrirhuguðum samræmdum prófum í ensku og stærðfræði, sem ráðgert var að leggja rafrænt fyrir nemendur í 9. bekk í næstu viku. Þessi ákvörðun byggir fyrst og fremst á hagsmunum nemenda og sjónarmiðum skólasamfélagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Framkvæmd samræmdra prófa í íslensku sem lögð voru fyrir nemendur í 9. bekk grunnskóla mánudaginn 8. mars, fór úrskeiðis. Tæknilegir örðugleikar urðu til þess að hundruð nemenda náðu ekki að ljúka prófinu.
„Að vel athuguðu máli telur Menntamálastofnun ekki öruggt að rafræn fyrirlögn prófanna muni ganga snurðulaust fyrir sig, enda hafi þjónustuaðili prófakerfisins ekki brugðist við aðstæðum með fullnægjandi hætti,“ segir í tilkynningunni.
Nemendum gefst þó kostur á því að taka könnunarpróf í viðkomandi greinum á tímabilinu 17. mars til 30. apríl nk. Menntamálastofnun ber að tryggja þá framkvæmd og tryggja skilvirka og skýra upplýsingamiðlun til skóla, nemenda og foreldra um fyrirkomulag könnunarprófa.
„Núverandi fyrirkomulag samræmdra prófa er komið á endastöð. Grundvallarbreyting á samræmdu námsmati hefur verið í undirbúningi, þar sem markmiðið er að tryggja betur hagsmuni nemenda og þarfir þeirra fyrir skýrt námsmat,“ segir ráðherra í tilkynningunni.
„Námsmat er mikilvægt verkfæri til þess að efla starfið í menntakerfinu – til að hvetja nemendur og gefa þeim upplýsingar um hvar þeir standa, fyrir kennara til þess að mæla árangur af sínum aðferðum og áherslum og fyrir skólastjórnendur og menntayfirvöld til þess að fylgjast með þróun mála. Okkar er að tryggja að námsmat sé gagnlegt, um það ríki sátt og skilningur og að áherslur séu í samhengi við aðalnámskrá. Við viljum stuðla að skýrri og skjótri endurgjöf fyrir nemendur og kennara og tillögur hópsins styðja það markmið okkar,“ segja Lilja enn fremur.
Fyrirhuguð er reglugerðarbreyting sem heimilar fyrrgreindar breytingar á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 9. bekk. Tekur hún meðal annars mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem kveðið er á um að það sem sé barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar ráðstafanir eru gerðar í málefnum barna.