Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn sem formaður VR, en þetta er niðurstaða allsherjaratkvæðagreiðslu sem lauk í dag.
Ragnar hefur verið kjörinn formaður til næstu tveggja ára, sem fyrr segir. Sjö stjórnarmenn voru jafnframt kjörnir en það eru þau:
Fram kemur á vef VR að Ragnar hafi fengið 6.526 atkvæði eða 63% atkvæða. Helga Guðrún Jónasdóttir, sem einnig sóttist eftir formennsku, hlaut 3.549 atkvæði eða 34,3,% atkvæða. Alls tók 271 ekki afstöðu.