Fá greitt vegna útlána hljóðbóka

Reglum úthlutunarnefndar Bókasafnasjóðs höfunda hefur nú verið breytt í þá veru að höfundar hljóðbóka sem lánaðar eru gegnum Hljóðbókasafn Íslands fá nú einnig greitt úr sjóðnum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. 

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir í fréttatilkynningu: „Þetta er ákveðið sanngirnismál, afnot af bókum gegnum Hljóðbókasafn Íslands eru mikilvæg fyrir hóp fólks á öllum aldri sem ekki getur nýtt sér hefðbundnar prentaðar bækur eða rit. Höfundar þeirra verka fá nú einnig greitt fyrir þau afnot af hljóðbókum sinna verka.“

Sjóðurinn úthlutar greiðslum til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa í samræmi við útlán verka þeirra. Framlög til bókasafnasjóðsins hafa verið aukin á síðustu árum og munu þau nema rúmum 197 milljónum kr. á þessu ári.

Úthlutað hefur verið úr sjóðnum frá árinu 1998 þegar hann var formlega settur á laggirnar. Greitt er fyrir útlán ársins á undan en í fyrra hlutu 813 höfundar greiðslur fyrir afnot ársins 2019 sem þá námu 1,8 milljónum útlána á bókasöfnum hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert