Rafmagn er komið á í miðbæ Hafnarfjarðar en þar varð rafmagnslaust um klukkan níu í kvöld. HS Veitur, sem sjá um rafmagnið á svæðinu, biðjast velvirðingar á þessu.
Hafnfirðingar gerðu margir hverjir grín að ástandinu undir Facebook-færslu HS Veitna.
uppfært 22:15 Rafmagn komið hjá öllum notendum. Við biðjumst velvirðingar á rafmagnsleysinu og þökkum góðar kveðjur og...
Posted by HS Veitur hf on Laugardagur, 13. mars 2021