Stærsti skjálftinn í nótt 4,6

Kort/Veðurstofa Íslands

Ekkert lát er á jarðskjálftunum á Reykjanesi. Stærsti skjálftinn í nótt var 4,6 að stærð og mældist þar klukkan 1:34. Jarðskjálftinn fannst víða, á Reykjanesskaga, í Borgarnesi og austur í Fljótshlíð samkvæmt upplýsingum frá jarðvársviði Veðurstofu Íslands.

Frá því um miðnætti hafa rúmlega 600 skjálftar mælst. Af þeim hafa tíu skjálftar mælst yfir 3 að stærð, þar af var einn við Trölladyngju en aðrir við suðvesturenda Fagradalsfjalls.

Í gær, föstudaginn 12. mars, mældust tæplega 3.000 skjálftar. Þar af voru 48 yfir 3 að stærð. Stærsti skjálfti gærdagsins var 5 að stærð klukkan 07:43 og voru upptök hans 2,7 km SSV af Fagradalsfjalli. Skjálftinn fannst vel á suðvesturhorninu. Virknin hefur aðallega verið bundin við sunnanvert Fagradalsfjall. Klukkan 22:39 í gærkvöldi varð skjálfti af stærð 3,9 sem fannst vel á Reykjanesinu og á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert