Undanfarið hefur verið unnið að því að fella tré á nýjum byggingarlóðum við Brekkuhvarf 1a-1g í Kópavogi.
Ástæðan fyrir trjáfellingunum er sú að fyrirhugað er að reisa þrjú parhús á tveimur hæðum á lóðunum. Þær eru staðsettar vestan Elliðavatns.
Breytt deiliskipulag á lóðunum var samþykkt á fundum í skipulagsráði og bæjarstjórn Kópavogsbæjar í desember og janúar síðastliðnum.