Jarðskjálftinn var 5,4

Jarðskjálftinn sem reið yfir klukkan 14:15 reyndist vera 5,4 að stærð og voru upptök hans um 2,5 km vestur af Nátthaga. Enginn órói mældist í kjölfarið.

Jarðskjálftinn fannst vel á suðvesturhorni landsins, norður á Sauðárkrók og suður í Vestmannaeyjar.

Rétt í þessu varð annar skjálfti, klukkan 14.38, um 4,0 að stærð en tekið er fram að það sé fyrsta mat náttúruvársérfræðinga á Veðurstofu Íslands. Á tímabilinu 14.16 til 14.38 mældust þrír skjálftar yfir þrír að stærð; 3,1, 3,4 og 3,5, auk þess sem fjölmargir minni skjálftar hafa mælst á þessum slóðum.

Í hádeginu, klukkan 12.34, var síðan skjálfti sem var 5 að stærð.  

Í dag, 14. mars, hafa mælst um 2.000 jarðskjálftar sjálfvirkt en síðan jarðskjálftahrinan hófst fyrir 18 dögum hafa um 44 þúsund skjálftar mælst á Reykjanesi. Sá stærsti var 5,7 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert