Nær 46% landsmanna bera mikið traust til dómskerfisins hér á landi. Um 31% segist bera lítið traust til dómskerfisins, en mun fleiri karlar bera mikið traust til kerfisins en konur.
Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Gallup sem gerð var dagana 14. janúar til 15. febrúar.
Hæstiréttur nýtur mikils trausts 57% landsmanna samkvæmt könnuninni á meðan Landsréttur nýtur mikils trausts 44% og héraðsdómstólarnir 47%.
Hlutfall þeirra sem þekktu vel til starfsemi Hæstaréttar er 34% og hlutfall þeirra sem þekktu vel til starfsemi Landsréttar er 28% en þeir sem þekktu starfsemi héraðsdómstólanna vel er 30%.
Hlutfall karla sem bera mikið traust til dómskerfisins er 51% á móti 41% kvenna en 40% karla töldu sig þekkja vel til starfseminnar á móti 29% kvenna. Þá er einnig meira traust á dómskerfinu hjá háskólamenntuðum og þegar fjölskyldutekjur voru 1.250 þúsund eða hærri.