Stefán Þorleifsson, fyrrverandi íþróttakennari og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, lést 14. mars á 105. aldursári. Hann var elsti karlmaður á Íslandi.
Stefán fæddist í Naustahvammi á Norðfirði 18. ágúst 1916. Hann var fjórði í röð fjórtán barna Maríu Aradóttur og Þorleifs Ásmundssonar.
Stefán kvæntist Guðrúnu Sigurjónsdóttur árið 1945 (f. 1925, d. 2013) og eignuðust þau fjögur börn. Stefán lauk íþróttakennaraprófi frá Laugarvatni árið 1940 og hóf strax að námi loknu að þjálfa og kenna íþróttir í heimabyggð.
Stefán var drifkraftur í fjölmörgum framfaramálum í Neskaupstað m.a. byggingu sundlaugarinnar sem hann síðan veitti forstöðu til margra ára. Á 100 ára afmæli Stefáns var sundlaugin nefnd Stefánslaug honum til heiðurs.
Hann var varaformaður byggingarnefndar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað og síðan forstöðumaður þess í 30 ár. Stefán hlaut í gegnum tíðina fjölda viðurkenninga fyrir störf sín að íþrótta- og félagsmálum og var m.a. sæmdur fálkaorðunni árið 1983.