Orsök bilunar fundin

Breiðafjarðarferjan Baldur.
Breiðafjarðarferjan Baldur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Orsök bilunarinnar sem varð í ferjunni Baldri er fundin.

Sérfræðingar í vélaviðgerðum skoðuðu vélina ásamt starfsmönnum Sæferða. Notuð var myndavél til að skoða það sem ekki er hægt að sjá með öðrum hætti innan í vélinni. Þar kom ekkert óeðlilegt í ljós.

Gamla túrbínan sem var keypt í fyrra var rifin í sundur og þá kom í ljós viðgerð á túrbínuöxlinum frá fyrri tíð. 

„Aðilar eru sammála um að þar liggi örsök þess að legan gaf sig með áðurgreindum afleiðingum. Fulltrúi frá innflytjanda túrbínunnar kom strax vestur þegar þetta lá fyrir,“ segir í tilkynningu frá Sæferðum.

Nýja túrbínan, sem kom til Stykkishólms í gærmorgun, er komin í skoðun til að tryggja að hún sé í lagi. Til stendur að taka röntgenmynd af henni, auk þess sem kallað hefur verið eftir nákvæmum upplýsingum frá seljanda erlendis. Aðrir hlutir í vél eru einnig í skoðun.

„Það er ljóst að þessar nýju vendingar frá gærdeginum munu hafa einhver áhrif á viðgerðartíma en hve mikið liggur ekki fyrir á þessari stundu. Um leið og það er sagt er mjög mikilvægt að orsök sé fundin, sem mun veita mun betri líðan þegar Baldur hefur siglingar aftur sem verður vonandi sem allra fyrst,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert