Skemmdir eftir skjálftann koma í ljós

Skemmdirnar komu í ljós í gær og í morgun.
Skemmdirnar komu í ljós í gær og í morgun. Ljósmynd/Vegagerðin

Frekari skemmdir hafa komið í ljós á Suðurstrandarvegi, í grennd við Festarfjall. Hafa sprungur myndast við axlir og í fyllingu vegarins, þannig að vegrið hefur ekki alls staðar fullan stuðning.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Bent er á að svæðið hafi verið merkt, akreinar þrengdar, þungatakmarkanir settar og hámarkshraði lækkaður. Unnið sé að lausnum varðandi lagfæringar á þessum skemmdum. 

„Vegurinn hefur einnig sprungið þvert á nokkrum stöðum,“ segir í tilkynningunni. 

Skemmdirnar komu í ljós í gær og í morgun, en á sunnudag varð skjálfti 5,4 að stærð og átti hann upptök sín á nokkurra kílómetra dýpi undir veginum.

Sprungur þvera veginn á nokkrum stöðum.
Sprungur þvera veginn á nokkrum stöðum. Ljósmynd/Vegagerðin

Þungatakmarkanir og skertur hámarkshraði

Ekki sé að sjá að komið sé sig í veginn sjálfan. Svæðið sem mest sé sprungið þurfi að skoða betur. Þar verði þrengt að umferðinni svo ekki reyni á þá kafla.

„Einnig hefur verið tekin ákvörðun um að setja þungatakmarkanir á veginn og miða við 7 tonna öxulþunga. Vegurinn verður þrengdur þannig að umferðin færist frá ytri brún, færslan verður stærri en sett var upp í gær.“

Hámarkshraði verði áfram 50 km/klst.

„Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega á veginum og svæðinu öllu. Ljóst er að breytingar geta átt sér stað enda skjálftavirknin áframhaldandi. Unnið er að frekari úrlausn.“

Myndirnar voru teknar áður en gripið var til ráðstafana.
Myndirnar voru teknar áður en gripið var til ráðstafana. Ljósmynd/Vegagerðin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert