Síðdegis í dag sendu almannavarnir út boð með SMS-skilaboðum um að enn væri varhugavert að vera í námunda við Keili og Fagradalsfjall. Skilaboðin voru og eru ætluð þeim vegfarendum sem eru nærri þessum svæðum. Hins vegar dreifðust þau á of stórt svæði, þar á meðal til Grindavíkur og inn á höfuðborgarsvæðið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.
„Almannavarnir ítreka að enn er varhugavert að vera í námunda við Keili og Fagradalsfjall og biðla til vegfarenda að taka tillit til þess,“ segir enn fremur.