Gæsluvarðhaldskröfu hafnað

Kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, en krafan var lögð fram í þágu rannsóknar lögreglu er varðar m.a. meint brot mannsins gegn nálgunarbanni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hún hefur kært úrskurð héraðsdóms til Landsréttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert