Áfram er bongóblíða á Austfjörðum og hefur hiti farið yfir 20 stig á tveimur stöðum, auk þess sem hann hefur daðrað við 20 stigin á tveimur öðrum mælistöðvum. Hæst hefur hitinn farið í 20,4 stig á Dalatanga og 20,2 stig á Neskaupstað.
Ekki munar nema 0,1 stigi að blíðan við Dalatanga jafni hitamet marsmánaðar en hæst hafa mælst 20,5 stig í Kvískerjum í Öræfum fyrir níu árum.
Um hitamet daganna 11. til 20. mars er að ræða en fyrra metið var sett við bæinn Kollaleiru í Reyðarfirði í gær. Þar var áfram hlýtt fyrri hluta dags og mældist þar hæst 19,6 stiga hiti í dag. Sama hitastig var einnig á Eskifirði.
„Það er byrjað að kólna. Maður finnur það alveg, þetta er dottið niður í 16 stig,“ segir Stefán Arason, íbúi á Reyðarfirði við mbl.is, þegar hann er spurður um veðurblíðuna á Austfjörðum.
Hann bætir því við að veðrið sé alltaf langbest á austurhluta landsins og betra sé að njóta sumarsins þar í stað rignarsumra í borginni.
Samkvæmt veðurspám er síðasti dagur mars-sumars á Austfjörðum í dag en á morgun kólnar, þótt hitatölur verði áfram rauðar. Þær verða bara ekki Tenerife-rauðar.