Rúmlega 50 starfsmenn spítalans í sóttkví

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. Ljósmynd/mbl.is

Vegna Covid-19-smits utan sóttkvíar, sem greindist í gær, 17. mars, munu ríflega 50 starfsmenn sem tilheyra 28 starfseiningum Landspítala fara í skimun og sóttkví. Starfsmennirnir sóttu reglubundna fræðslu í tengslum við starfsþjálfun, utan spítalans.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu spítalans.

Þar kemur fram að starfsmenn sem eru fullbólusettir eða hafa fengið veiruna fara í skimun og mótefnamælingu. Þeir eiga að vera í úrvinnslusóttkví þar til neikvæðar niðurstöður hafa borist úr báðum prófum.

Hálfbólusettir og óbólusettir starfsmenn verða boðaðir í skimun hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut 34 föstudaginn 19. mars.

„Þessir starfsmenn eru í sóttkví frá og með nú og verða boðaðir í seinni sýnatöku þegar 7 dagar eru liðnir frá útsetningu. Ef síðara sýni reynist neikvætt getur yfirmaður sótt um sóttkví C fyrir starfsmenn sem gildir í 14 daga frá útsetningu,“ segir á síðu spítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert