Var viðstaddur vorgleði starfsmanna hótelsins

ION hótelið á Nesjavöllum.
ION hótelið á Nesjavöllum. Ljósmynd/ION Lux­ury Advent­ure Hotel

Einn starfsmaður ION Hótela greindist með kórónuveirusmit í gær en hann var utan sóttkvíar. Starfsmaðurinn hefur ekki verið á vakt á hótelinu frá 7. mars síðastliðnum eða 10 dögum áður en smitið kom upp og eiga því engir gestir hótelsins að vera í smithættu.

Starfsmaðurinn er með væg einkenni og ákvað að eigin frumkvæði að fara í sýnatöku í gær vegna þess að hann átti að mæta til vinnu á morgun, föstudag, að því er fram kemur fram í tilkynningu frá ION.

Engu að síður hafa um 100 manns þurft að fara í sóttkví vegna smitsins. Starfsmaðurinn var nefnilega viðstaddur vorgleði starfsmanna sem fór fram á hóteli ION á Nesjavöllum síðastliðinn sunnudag. Þá var hann einkennalaus en allir sem sóttu skemmtunina eru nú í sóttkví. Enn sem komið er hefur enginn fundið fyrir einkennum.

Starfsfólk hótelsins vinnur náið með sóttvarnaryfirvöldum að málinu. Smitrakning stendur yfir og er búist við raðgreiningu í kvöld, samkvæmt sóttvarnarlækni.

„Eftir að smitið kom upp hefur öllu eftirliti og leiðbeiningum um sóttvarnir verið fylgt eftir til að tryggja öryggi og velferð gesta og starfsfólks. Búið er að manna allar vaktir og er starfsemi ION Hótela, Sumac og ÓX því óbreytt og verður opin gestum um helgina,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert