Borgarráð hefur heimilað malbikunarframkvæmdir sumarið 2021 fyrir 1.117 milljónir króna. Um er að ræða bæði malbikun yfirlaga með fræsun og malbikun sem og malbikun yfir eldri slitlög. Áætlaður kostnaður er 916 milljónir króna.
Auk þess verða framkvæmdir við malbiksviðgerðir fyrir 201 milljón króna samkvæmt rekstraráætlun umhverfis- og skipulagssviðs, að því er segir í tilkynningu.
Framkvæmdir ársins eru í samræmi við átak um endurnýjun á malbiki á götum Reykjavíkur. Á árunum 2018-2022 er gert ráð fyrir að varið verði um 6.200 milljónum króna til endurnýjunar á malbiksyfirlögum auk hefðbundinna malbiksviðgerða.
Nánar um malbiksframkvæmdir í sumar