Upphaf þeirrar miklu virkni sem nú mælist á Reykjanesskaga má rekja til þess þegar skjálftahrina og landris mældist við Þorbjörn í lok janúar 2020.
Það var strax ljóst að atburðarásin var óvenjuleg fyrir svæðið ef horft var til virkni síðustu áratuga á svæðinu. Mat vísindaráðs almannavarna eftir fyrstu hrinurnar var það að atburðarás eins og var að hefjast á Reykjanesskaga gæti orðið mjög löng og kaflaskipt, þar sem dregur úr virkni tímabundið án þess að henni sé að fullu lokið. Sú hefur orðið raunin. Eldgos hófst í Fagradalsfjalli í kvöld. Fyrsta tilkynning barst Veðurstofunni klukkan 21:40. Gos var staðfest í gegnum vefmyndavélar og gervitunglamyndir. Staðsetning er við Fagradalsfjall. Lítill órói sást á mælum. Vísindamenn eru að leggja af stað í þyrluflug til að staðsetja gosið nánar. Upptök eldgossins eru rétt austan Fagradalsfjalls, líklega í Geldingadal.
Á síðustu öld mældist veruleg virkni víða á Reykjanesskaganum á árunum 1927-1955 og 1967-1977. En virknin nú er sú mesta sem mælst hefur á Reykjanesskaganum frá upphafi.