Efla Kópavog með nýsköpunarstarfi

Frumkvöðlasetur. F.v. Guðmundur Sigurbergsson, forstöðumaður SKÓP, Helga Hauksdóttir, formaður stjórnar …
Frumkvöðlasetur. F.v. Guðmundur Sigurbergsson, forstöðumaður SKÓP, Helga Hauksdóttir, formaður stjórnar Markaðsstofu Kópavogs, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir nýsköpunarráðherra og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.

Atvinnu- og nýsköpunarsetrið Skóp, sem er fyrir frumkvöðla í Kópavogi, var opnað formlega í gær. Frumkvæði að verkefninu hafði Markaðsstofa Kópavogs sem nýtur til þessa dyggs stuðnings frá Kópavogsbæ og ýmsum fyrirtækjum í bæjarfélaginu.

Markmiðið með starfsemi Skóp er að efla enn frekar fjölbreytt atvinnulíf í bænum með því að efla alla vaxtarsprota. Hugmyndin er að veita Kópavogsbúum aðstoð við að fullmóta viðskiptahugmyndir sínar og verður sérstaklega horft til fólks í atvinnuleit og þeirra sem vilja skapa sér sín eigin tækifæri. Helstu skilyrði fyrir þáttöku eru að viðkomandi sé lögráða og eigi lögheimili í Kópavogi

Í Skóp, sem er að Hlíðarsmára 9, verður rýnt í viðskiptahugmyndir með fólki, greindir þeir þættir sem skipta mestu máli til að hrinda henni í framkvæmd, svo sem með heildstæðri viðskiptaáætlun. Reiknað er með að ferlið frá hugmynd að viðskiptaáætlun geti tekið þrjá til sex mánuði. sbs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert