Almannavarnir hafa sent frá sér leiðbeiningar til almennings um hvað beri að varast ef farið er nærri gosstöðvunum í Geldingadal. Meðal annars er þar varað við að gönguferðin geti verið nokkuð löng, veður geti breyst með skömmum fyrirvara og að gasmengun geti verið talsverð í næsta nágrenni við gosstöðina.
- Utanvegaakstur er ólöglegur.
- Þetta á við um öll vélknúin ökutæki, svo sem fjórhjól, sexhjól, mótorhjól.
- Það er mögulegt að leggja í Grindavík og við Bláa lónið og ganga þaðan helgina 20.-21.3.
- Ferðin frá bílastæði tekur 4-6 klukkustundir og er eingöngu fyrir fólk sem vant er útivist í erfiðum aðstæðum.
- Veður getur breyst á skömmum tíma. Það er kalt og blautt og spáð roki um helgina.
- Vertu í gönguskóm, hlýjum og vatnsheldum fatnaði.
- Gerðu ráð fyrir því að ferðin geti tekið lengri tíma en áætlað er.
- Vertu með nesti og vatn að drekka.
- Fylgstu vel með ferðafélögunum. Þreyta og ofkæling kemur fljótt.
- Haldið ykkur við fell og hryggi. Forðist dali og dældir í landslaginu.
- Það er hætta á grjóthruni. Varist brattar hlíðar.
- Það þarf ekki mikið út af að bregða til að villast.
- Vertu með staðsetningartæki.
- Símasamband á svæðinu er slæmt og getur þá orðið erfitt að kalla á hjálp ef þörf krefur.
- Gosstöðvar geta breyst og nýjar gossprungur mögulega opnast með litlum fyrirvara.
- Gasmengun er mest nálægt svæðinu og getur leynst í dölum og dældum þar sem það er sérlega varasamt. Gasmengun getur breyst með litlum fyrirvara ef gosið eykst skyndilega og varasamt að vera nálægt gosstöðvunum án mælitækja.
- Fólk á alltaf að halda sig undan vindi. Það þýðir að fólk á að vera með vindinn í bakið þegar það gengur að gosstöðvunum og í fangið þegar það gengur til baka.
- Gasmengunin sést ekki og fylgir ekki endilega þeim sýnilega gasmekki á svæðinu.
- Gasmengun getur verið lyktarlaus og þá er erfitt að verjast henni.
- Gasmengun getur loðað við þótt sýnilegur gosmökkur sé breyttur með breyttri vindátt.
- Grímur sem notaðar eru til sóttvarna veita enga vörn gegn gasmengun.
- Ef þið finnið fyrir minnstu heilsufarseinkennum þá skuluð þið forða ykkur strax með vindinn í fangið.