Fimm smit innanlands – þrír utan sóttkvíar

Fimm kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Þrír þeirra voru utan sóttkvíar sem þýðir að aðeins 40% þeirra sem greindust innanlands í gær, sunnudag, voru í sóttkví.

Nú eru 55 í einangrun og 196 í sóttkví. Í skimunarsóttkví eru 1014. Þrír eru á sjúkrahúsi með Covid-19. Alls greindust 10 með Covid á landamærunum í gær en það eru skipverjar um borð í súrálsskipi við Reyðarfjörð. Einn bíður niðurstöðu úr mótefnamælingu á landamærunum. 

Ný­gengi smita inn­an­lands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 3,3 síðustu tvær vik­ur og 11,5 á landa­mær­un­um. 

Alls voru 416 ein­stak­ling­ar skimaðir inn­an­lands í gær og 461 á landa­mær­un­um. 

Alls er 41 í ein­angr­un á höfuðborg­ar­svæðinu, tveir á Suðurnesjum, einn á Suðurlandi, einn á Norðurlandi eystra og 10 óstaðsettir í hús. Í sótt­kví eru 186 bú­sett­ir á höfuðborg­ar­svæðinu, tveir á Suður­nesjum og tveir á Suðurlandi. Einn er í sóttkví á Austurlandi, Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra. Þrír eru óstaðsetti­ur í hús.

Flest smit­in eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára eða 22 talsins. Í aldurshópnum 18-29 ára eru 19 smit. Þrír eru með Covid í aldurshópnum 13-17 ára. Tvö smit eru í ald­urs­hópn­um 40-49 ára. Fjögur í ald­urs­hópn­um 50-59 ára eru með Covid-19. Tveir á sjö­tugs­aldri eru með Covid og þrír á átt­ræðis­aldri.  

Fréttin verður uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert