Tveir smitaðir í Norrænu

Norræna er á leið til landsins með tvö staðfest smit …
Norræna er á leið til landsins með tvö staðfest smit innanborðs.

Ferjan Norræna kemur til Seyðisfjarðar í fyrramálið með 77 farþega og tveir þeirra hafa þegar greinst með Covid-19 við komu um borð í Hirtshals í Danmörku.

Báðir höfðu þeir áður framvísað neikvæðu PCR-prófi í samræmi við reglur, ekki eldra en 72 klukkustunda gömlu, en hafa frá greiningu verið í einangrun um borð. Ekki er því talið að aðrir hafi orðið berskjaldaðir fyrir smiti, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

Farþegar Norrænu fara sem fyrr í sýnatöku við komu til landsins, þá í sóttkví í fimm daga og svo í sýnatöku að nýju.

Hinir tveir smituðu verða áfram í einangrun eftir komu og undir eftirliti sóttvarnayfirvalda sem kanna meðal annars hvort mögulega sé um gamalt smit að ræða. Hvorugur hinna smituðu sýnir einkenni Covid-smits, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert