Hvít Benz-sendibifreið var tekin ófrjálsri hendi þar sem hún stóð í stæði á Skipasandi í Vestmannaeyjum, á milli klukkan fimm og sex í morgun.
Var henni ekið austur Strandveg og rétt austan við gatnamót Bárustígs og Strandvegar var henni ekið á umferðarmerki og síðan var henni ekið áfram áleiðis austur á Nýjahraun.
Á Skansvegi, sunnan við FES, var bifreiðinni ekið út af og sat hún þar föst þegar lögregla kom á vettvang að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.
Bifreiðin er sögð mikið skemmd.
Lögreglan biður þá sem mögulega hafi séð þegar bifreiðin var tekin, eða þegar henni var ekið á Strandveginum í morgun, að hafa samband.