Mygla í leikskóla í Kópavogi

Austurkór er leikskóli í Kópavogi.
Austurkór er leikskóli í Kópavogi. Ljósmynd/Kópavogsbær

Tveimur deildum í leikskólanum Austurkór í Kópavogi hefur verið lokað vegna myglu í klæðningu á útvegg, sem er á suðvesturhlið leikskólans. Lokunin er gerð í varúðarskyni til þess að vernda starfsmenn og nemendur, segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Deildirnar hafa ekki verið nýttar í daglegu starfi en nýttar til sérkennslu fyrir litla hópa. Því hefur lokunin takmörkuð áhrif á leikskólastarf í Austurkór. Alls eru 76 börn í skólanum. 

Myglan greindist í kjölfar einkenna starfsmanns sem grunur lék á um að rekja mætti til mygluskemmda. Verkfræðistofan Mannvit var fengin til að taka sýni og senda til greiningar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Ekki fannst mygla í þeim sýnum.

Einnig voru tekin sýni úr einangrun útveggjar og gifsklæðningu á suðvesturhlið, þar sem vart hafði orðið við leka. Niðurstaða úr þeirri greiningu, sem kom frá Náttúrufræðistofnun Íslands, sýnir myglu í útvegg deildarinnar. 

Viðgerðir hafnar

Viðgerðir á Austurkór eru þegar hafnar. Til stendur að fjarlægja einangrun innandyra og klæða húsið að utan á sambærilegan hátt og á norðurhlið hússins. 

Fundað hefur verið með foreldraráði og starfsfólki skólans og þá hafa foreldrar í leikskólanum verið upplýstir um stöðu málsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá bænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert