Fjórir lögreglumenn og átján björgunarsveitarmenn ganga nú á milli fólks á gossvæðinu í Fagradalsfjalli til þess að biðja það að yfirgefa svæðið þar sem gasmengun er talin í þann mund að verða lífshættuleg vegna breyttrar vindáttar.
Sigurður Bergmann segir að rýmingin fari vel af stað en lögreglan verði að næsta einn og hálfan tíma eða svo.
Talað var um að klukkan fimm væri fólki ráðið frá því að vera á staðnum en þegar þetta er skrifað er enn fjölda fólks að sjá á vefmyndavélum, bæði á mbl.is og RÚV.
Sigurður segir að hver sá sem hlíti ekki tilmælum lögreglu verði eftir á svæðinu á eigin ábyrgð. Hann segist jafnvel hafa haft spurnir af því að fólk sé að leggja af stað í göngu frá Grindavíkurvegi, þar sem lögreglan er ekki með eftirlit, og að af því muni hljótast verkefni fyrir viðbragðsaðila eftir því sem líður á kvöldið.
Samkvæmt spám Veðurstofu Íslands er í dag suðvestlæg átt og mun draga smám saman úr vindi. Eftir klukkan 19 má gera ráð fyrir að vindur sé undir 3 m/s og því getur magn SO2 nálægt eldstöðinni farið yfir 9000 µg/m3, að því er fram kemur í tilkynningu.
Því getur skapast mikil hætta fyrir fólk sem er þar á staðnum. Miðað við vindaspá næst gosstöðvunum er því líklegt að loftgæði í næsta nágrenni gosstöðvanna og að gasmengun frá CO2 í dældum og lægðum nálgist lífshættuleg gildi.