Skipaður lögreglustjóri á Vesturlandi

Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóri á Vesturlandi.
Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóri á Vesturlandi. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Dómsmálaráðherra hefur skipað Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, í embætti lögreglustjórans á Vesturlandi frá 7. apríl næstkomandi.

Gunnar Örn var frá árinu 2015 yfirmaður ákærusviðs við embætti lögreglustjórans á Suðurlandi og staðgengill lögreglustjóra, þar til að hann tók við embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra árið 2017.

Gunnar Örn útskrifaðist sem lögfræðingur árið 2003. Hann starfaði sem löglærður fulltrúi sýslumannsins á Selfossi frá 2004 til ársins 2014, þar af sem staðgengill sýslumanns frá 2008.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert