Blaðamannafundur um sóttvarnaráðstafanir verður haldinn í Hörpu klukkan þrjú síðdegis. Forsætisráðuneytið boðar til fundarins. Hér má sjá upptöku frá fundi dagsins.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra verða fulltrúar ríkisstjórnarinnar á fundinum.
Væntanlega verða hertar sóttvarnaaðgerðir tilkynntar á fundinum en kórónuveirufaraldurinn hefur verið heldur á uppleið hérlendis síðustu daga.
Ríkisstjórnin fundaði í Ráðherrabústaðnum fyrir blaðamannafundinn og að honum loknum héldur ráðherrarnir í Hörpu. Þeir gáfu ekki kost á viðtali fyrir fundinn.
Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Alma D. Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, verði til svara á fundinum.
Fundurinn verður sýndur í beinu streymi hér á mbl.is.