Samtals voru 13.100 einstaklingar atvinnulausir í febrúar 2021 samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands sem jafngildir 6,4% af vinnuaflinu.
Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 78,2% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 72,4%. Samanburður við janúar 2021 sýnir að árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka jókst um 1,5 prósentustig á milli mánaða og árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,8 prósentustig.
Starfandi á vinnumarkaði unnu að jafnaði 36 stundir í febrúar 2021 sem er 2,8 stundum minna en í febrúar 2020. Rétt er að ítreka að breytingar sem gerðar voru um áramót á mælingu vikulegra vinnustunda í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunar urðu þess valdandi að skipulagt matarhlé og fjarvera vegna persónulegra erinda teljast ekki til vinnutíma.
„Eðlilegt er að mældur vinnutími dragist saman vegna breytinganna en frekari greiningar eru fyrirhugaðar til þess að meta áhrifin,“ segir á vef Hagstofu Íslands.
Á síðustu tveimur mánuðum hefur nokkuð dregið úr slaka á vinnumarkaði þó töluverður slaki sé enn til staðar. Samtals höfðu um 29.000 einstaklingar óuppfyllta þörf fyrir atvinnu í febrúar 2021 sem jafngildir 13,8% af vinnuafli og mögulegu vinnuafli.
Af þeim voru 42,4% atvinnulausir, 15,1% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 18% í vinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 24,5% starfandi en vinnulitlir og vildu vinna meira. Samanburður við febrúar 2020 sýnir að dregið hefur úr slaka á vinnumarkaði um 1,2 prósentustig á milli ára.