Sex smit innanlands – fimm í sóttkví

Fjölmargir hafa farið í skimun vegna Covid-19 undanfarna daga.
Fjölmargir hafa farið í skimun vegna Covid-19 undanfarna daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls greindust sex innanlandssmit í gær og eru nú 95 í einangrun. 1.279 í eru í sóttkví og 869 eru í skimunarsóttkví. Ekkert smit greindist á landamærunum í gær. Af þeim sex sem greindust með Covid-19 í gær voru fimm í sóttkví eða 83,33%. Enginn er á sjúkrahúsi vegna Covid-19.

Ný­gengi smita inn­an­lands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 10,9 síðustu tvær vik­ur og 13,4 á landa­mær­un­um. 

1.220 sýni voru tek­in inn­an­lands í gær. Á landa­mær­un­um voru tek­in 323 sýni.

Öll smitin sem greindust í gær eru í yngri aldurshópunum. Það er eitt bættist við í aldurshópnum 6-12 ára, þrjú meðal fólks á aldrinum 13-17 ára og tvö í hópnum 18-29 ára.

Flest smit­in eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára eða 30 og 26 í ald­urs­hópn­um 18-29 ára. 13 smit er á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og átta í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. Sex smit eru í ald­urs­hópn­um 40-49 ára. Átta smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára, eitt meðal fólks á sjö­tugs­aldri og þrír á átt­ræðis­aldri eru með Covid-19.  

 




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert