Það var einkennandi á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í vikunni, þar sem hertar sóttvarnaráðstafanir voru kynntar, að fjármálaráðherra fór yfir stuðning við fyrirtækin landinu „en splæsti varla setningu á stöðu heimilanna.“
Þetta skrifar Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, í pistli sínum Veiran og tekjuvarnir.
Hún segir að lokanir grunnskóla þýði að margir foreldrar þurfi að vera heima í stærri stíl til að gæta barna. Síðan berist fregnir af því að fólk sé sent heim launalaust eða látið taka út frí. Þá hafi það gerst að sveitarfélög skerði laun fólks sem getur ekki annað en verið heima vegna barna nú eða færi fólk á milli starfa eða stofnana án samráðs.
„Það er ljóst í mínum huga að lög um greiðslur í sóttkví verður að útvíkka þannig að hægt sé að grípa fólk sem situr uppi tekjulaust vegna nýjustu sóttvarnaraðgerðanna. Fjölmörg heimili hafa þegar gengið í gegnum miklar tekjuskerðingar undanfarið ár og fjöldi barnafólks var í þeirri stöðu síðastliðið sumar að hafa notað alla sína orlofsdaga til að vera heima með börnum sínum vegna skerts skóla- og leikskólahalds,“ skrifar Drífa.
Afkomu fólks verði að tryggja og ef það þarf að fara heim til að gæta barna vegna sóttvarnaraðgerða þá þarf að brúa það bil, með nákvæmlega sama hætti og komið er til móts við fyrirtæki.
„Við gerum þá skýlausu kröfu að sveitarfélög og opinberar stofnanir veiti fólki launað leyfi til að sinna börnum sínum. Aðrir atvinnurekendur eiga að gera slíkt hið sama og þar sem þess er þörf eiga stjórnvöld að styðja við fólk og fyrirtæki til að tryggja að svo sé,“ skrifar hún jafnframt.
Í góðu fréttum vikunnar hafi tekist að afstýra því að starfsfólki hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjum yrði sagt upp eða lækkað í launum við yfirfærslu frá sveitarfélögunum til ríkisins.