Sprengja sprengd í Ólafsfjarðargöngum

mbl.is/Eggert

Mikill viðbúnaður var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í vikunni í kjölfar þess að heimagerð sprengja var sprengd í Ólafsfjarðargöngum. Tjón af völdum sprengingarinnar er talið nema milljónum króna og orsakaði meðal annars ljósleysi í Ólafsfjarðargöngum.

Málið er litið alvarlegum augum. Lögreglan naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og sprengjusérfræðinga hennar við framkvæmdir á húsleitum á Ólafsfirði á miðvikudag. Fjórir voru handteknir vegna málsins bæði í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og lögreglustjórans á Suðurnesjum, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.

„Aðgerðirnar voru hluti af rannsókn lögreglunnar á athæfi sem hefur í för með sér almannahættu.

Málsatvik liggja að mestu fyrir eftir skýrslutökur hjá lögreglunni á Akureyri og á Suðurnesjum en frekari rannsókn stendur yfir. Fólkinu sem allt er á fertugs- og fimmtugsaldri hefur verið sleppt úr haldi lögreglu,“ segir enn fremur.

Frá Ólafsfirði.
Frá Ólafsfirði. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert