Þrír til viðbótar smitaðir í Norrænu

Norræna kom til Seyðisfjarðar á þriðjudaginn.
Norræna kom til Seyðisfjarðar á þriðjudaginn.

Fimm voru greindir með kórónuveirusmit á landamærunum á Seyðisfirði við komu Norrænu á þriðjudag. Þeir voru hluti af tuttugu og fimm manna hópi þar sem tveir greindust smitaðir við komu um borð í Norrænu í Hirtshals í Danmörku.

Þrír bættust í hóp smitaðra við komu. Allir hafa þeir verið í einangrun síðan og ekki talin hætta á að smit berist í samfélagið, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar á Austurlandi.

Samkvæmt upplýsingum aðgerðastjórnar var annar tveggja þeirra sem greindist smitaður í Hirtshals með gamalt smit og því ekki veikur eða smitandi. Aðgerðastjórn gerir ráð fyrir leiðréttingu vegna þessa og að smituðum muni því fækka um einn á Austurlandi þegar nýjar tölur berast á morgun.

Skipið Taurus Confidence.
Skipið Taurus Confidence.

Ástand skipverja stöðugt

Tíu Covid-smitaðir áhafnarmeðlimir eru um borð í súrálsskipi sem liggur í Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði. Fylgst er mjög skipulega með líðan þeirra í samvinnu Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) og Covid-deildar Landspítala. Ekki hefur þurft að flytja neinn þeirra frá borði og ástandið er stöðugt.

Alls eru nítján í áhöfn skipsins. Aðrir skipverjar, níu talsins, hafa í tvígang verið skimaðir eftir komu skipsins til Reyðarfjarðar, fyrst á komudegi 20. mars og svo aftur 22. mars. Niðurstöður voru í báðum tilvikum neikvæðar. Þeir verða skimaðir að nýju næstkomandi mánudag, en enginn þeirra sýnir einkenni veikinda.

„Aðgerðastjórn vekur athygli á að mörg smit hafa komið upp á landinu nýverið og sóttvarnir hertar vegna þess. Þá eru smit nú býsna nærri okkur í fjórðungnum þó ekki sé talin hætta á dreifingu þeirra,“ segir í tilkynningunni.

„Staðan sýnir þó glöggt mikilvægi þess að við förum ofurvarlega, ekki síst nú í aðdraganda páska með þeim áskorunum sem þeim fylgja. Gætum því að öllum persónubundnum vörnum sem áréttaðar hafa verið svo oft, tveggja metra reglu, grímunotkun, handþvott og sprittnotkun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert