Búið er að opna fyrir umferð um Suðurstrandarveg en hann er lokaður frá Hrauni að Krísuvíkurafleggjara. Gönguleiðin að gosstöðvunum verður opnuð klukkan 10. Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, varar fólk við því að gönguleiðirnar eru flughálar og nauðsynlegt sé að vera á broddum til að fara þessa leið. Mjög kalt er á þessum slóðum og hvöss norðanátt.
„Á nýafstöðnum fundi var ákveðið að opna Suðurstrandarveg og gönguleið að gosstöðvunum í Geldingadölum kl. 10:00. Veður á svæðinu er þeim hætti að strekkingsvindur er af norðri og flughált á gönguleiðum að gosstöðvunum. Fólki er sem hyggst fara að gosstöðvunum í dag, er eindregið ráðlagt að búa sig vel og hafa brodda meðferðis,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.
Suðurstrandarvegur er opinn með takmörkunum og lögregla er með umferðarstýringu á svæðin. Einstefna er frá Grindavík til austurs að Ísólfsskála og þar er hraði tekin niður í 30 km/klst. Veginum var lokað í gærkvöldi og eins var bannað að fara að gosinu í Geldingardölum í gærkvöldi og í nótt.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands eru útlit fyrir norðan 8-15 m/s í nágrenni eldstöðvarinnar í dag og mengun leggur þá til suðurs frá gosinu.
Á þriðjudag er áfram útlit fyrir norðlæga átt, 5-10 m/s en um kvöldið snýst í hægari vestlæga átt.
Ekki er búist við að mengun fari yfir heilsuverndarmörk í byggðum í nágrenni gosstöðvanna.