Konur í meirihluta í stjórn Eimskips

Stjórnina skipa, efri röð frá vinstri: Baldvin Þorsteinsson, Lárus L. …
Stjórnina skipa, efri röð frá vinstri: Baldvin Þorsteinsson, Lárus L. Blöndal, Guðrún Ó. Blöndal, Margrét Guðmundsdóttir. Neðri röð, frá vinstri: Ólöf Hildur Pálsdóttir og varamennirnir Jóhanna á Bergi og Óskar Magnússon. Ljósmynd/Eimskip

Konur skipa meirihluta stjórnar Eimskips í fyrsta sinn eftir að ný stjórn var kjörin á aðalfundi fyrirtækisins á fimmtudaginn síðastliðinn. Var þar og farið yfir síðastliðið ár og staða félagsins kynnt hluthöfum.

Stjórn Eimskips er skipuð þremur konum og tveimur körlum:

Baldvin Þorsteinsson, formaður stjórnar              
Lárus L. Blöndal, varaformaður stjórnar
Guðrún Ó. Blöndal, stjórnarmaður
Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarmaður
Ólöf Hildur Pálsdóttir, stjórnarmaður

Hrund Rudolfsdóttir og Vilhjálmur Vilhjálmsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og tóku Margrét Guðmundsdóttir og Ólöf Hildur Pálsdóttir sæti þeirra í stjórn félagsins.

Auk þeirra skipa Jóhanna á Bergi og Óskar Magnússon varamannasæti stjórnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert