Semja um endurskipulagningu fjármála Strandabyggðar

Strandabyggð.
Strandabyggð.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, undirritaði í dag samkomulag við sveitarstjórn Strandabyggðar um að hefja endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins til að unnt verði að ná jafnvægi í rekstri og standast fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga. Samkomulagið kveður einnig á um 30 milljóna kr. framlag úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins

Sigurður Ingi segir í tilkynningunni að hann hafi í ráðherratíð sinni lagt mikla áherslu á gott samstarf við sveitarstjórnarstigið um eflingu þess. „Það er ljóst að sveitarfélögin eru misjafnlega í stakk búin til að bregðast við áföllum. Því er mikilvægt að nýta þau verkfæri sem til eru til að styðja sveitarfélög við hagræðingu og stefnumótun til að þau geti staðið undir lögbundinni þjónustu nærsamfélagsins,“ segir Sigurður Ingi.

Venjubundinn rekstur stendur ekki undir skuldbindingum

Í tilkynningunni kemur fram að ráðuneytið hafi á síðasta ári veitt fjárframlag til að vinna greiningu á fjármálum sveitarfélagsins. Í skýrslu KPMG, sem kynnt var sveitarstjórn í desember 2020, kom fram að venjubundinn rekstur stæði ekki undir skuldbindingum sveitarfélagsins og verulegur halli væri fyrirséður á rekstri sveitarfélagsins.

Í byrjun mars óskaði sveitarstjórn Strandabyggðar eftir að gera samkomulag við ráðuneytið um fjármál sveitarfélagsins, á grunni heimildar í 83. gr. sveitarstjórnarlaga. Í lögbundinni umsögn eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga var mælt með því samkomulagið yrði gert.

Markmið samkomulagsins eru að stuðla að markvissri vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu og hagræðingu í rekstri Strandabyggðar, skapa grundvöll fyrir fjárhagsáætlanagerð og aðgerðaáætlun fyrir árin 2022-2025 og móta verkefnaáætlun sveitarstjórnar.

Munu ráða óháðan ráðgjafa

Í samkomulaginu felst að sveitarstjórn Strandabyggðar mun ráða óháðan ráðgjafa sem vinnur með sveitarstjóra og starfsmönnum sveitarfélagsins að fjárhagslegri greiningu og markmiðasetningu. Þá skuldbindur sveitarstjórnin sig einnig til að vinna að hagræðingu í rekstri og draga úr rekstrarútgjöldum eins og kostur er, jafnframt því sem leitast verður við að auka tekjur. Þá er í samkomulaginu gert ráð fyrir að unnin verði úttekt á kostum sameiningar við önnur sveitarfélög og fjárhagslegum áhrifum sameiningar.

Samkomulagið kveður einnig á um 30 milljóna kr. framlag úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sbr. heimild í 84. gr. sveitarstjórnarlaga þar að lútandi. Ráðgjafarnefnd jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt framlagið fyrir sitt leyti. 

Jón Gísli Jónsson, oddviti Strandabyggðar, undirritaði samkomulagið fyrir hönd sveitarfélagsins, en með honum fyrir hönd Strandabyggðar var einnig Þorgeir Pálsson sveitarstjóri. „Við þökkum ráðherra og starfsfólki hans stuðninginn og lítum á samninginn sem tækifæri fyrir sveitarfélagið til að rýna í innviðina og ná þannig betur utan um fjármál okkar og markmiðasetningu í þeim efnum,“ er haft eftir Jóni Gísla í tilkynningu Stjórnarráðsins. 

„Það eru mörg tækifæri í þessu sambandi, sem við munum skoða, og eins og ráðherra benti réttilega á gætu þarna verið möguleikar fyrir okkur á að sækja í störf án staðsetningar,“ bætti Þorgeir við. „Það er lykilatriði, til lengri tíma litið, að efla atvinnustarfsemi sveitarfélagsins og fjölga þannig tekjustofnum þess,“ sagði Þorgeir að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert