Ríkið semur við framhaldsskólakennara

Skrifað var undir í Karphúsinu fyrr í dag.
Skrifað var undir í Karphúsinu fyrr í dag. Mynd/mbl.is

Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum skrifuðu í dag undir samkomulag við ríkið um breytingar og framlengingu á kjarasamningi.

Skrifað var undir samkomulagið í húsnæði ríkissáttasemjara með fyrirvara og samþykki félagsmanna FF og FS. Fyrirkomulag kynninga og atkvæðagreiðslu verður kynnt félagsmönnum strax eftir páska.

Gildistími nýja samningsins er frá 1. janúar 2021 til 31. mars 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert