Einn heppinn miðahafi í Wiesbaden í Þýskalandi hreppti annan vinning í EuroJackpot í kvöld og fær rúmlega 321 milljón króna í vinning.
Átta miðahafar skipta svo með sér þriðja vinningi og fá rúmlega 14,1 milljón hver en miðarnir voru keyptir í Danmörku, Hollandi, þrír í Finnlandi og tveir í Þýskalandi.
Enginn var með fyrsta vinning og stefnir því stóran pott í næstu viku.
Þrír miðahafar voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og hlutu annan vinning í Jóker í kvöld. Miðahafarnir fá 100 þúsund krónur hver en einn miðanna var keyptur á lotto.is, annar í Lottó-appinu og sá þriðji var í áskrift.