Ásta Rut Hjartardóttir, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, segir að verið sé að staðsetja nýju sprunguna, sem opnaðist í Geldingadölum í dag, betur á korti en allt líti út fyrir að hún sé á því svæði þar sem gamlar sprungur höfðu hreyfst nýlega.
„Þessar gulu línur eru nýhreyfðar sprungur sem við sáum fyrir nokkrum dögum, gamlar í eðli sínu en höfðu hreyfst nýlega,“ segir Ásta í samtali við mbl.is. Hún segir að þau hafi mælt þessa hreyfingu fyrir nokkrum dögum og þetta svæði hafi í raun verið á hreyfingu síðan í byrjun gossins.
Vísindafólk og starfsmenn Landhelgisgæslunnar skoða nú svæðið nánar úr lofti og af þeim sökum er almennt flugbann yfir gosstöðvunum.
English below Sæl öll sömul Á hádegi, eða rétt eftir kl 12 þá opnaðist ný gossprunga norðan við núverandi gíga (image...
Posted by Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands on Monday, 5 April 2021