Á myndum sem voru teknar í könnunarflugi nú síðdegis má sjá að hraunbreiðurnar úr gosopunum þremur á Reykjanesskaga ná nú saman. Þetta kemur fram í facebookfærslu Veðurstofunnar.
„Hraun frá þriðja gosstaðnum sem opnaðist á miðnætti hefur runnið bæði til suðurs niður í Geldingadali og í norðaustur í áttina að gosopinu ofan við Meradali. Samfeld hraunbreiða er því á milli gosstaðanna þriggja sem í raun tilheyra einni og sömu gossprungunni yfir kvikuganginum við Fagradalsfjall,“ segir í færslunni.
Á myndum sem voru teknar í könnunarflugi nú síðdegis má sjá að hraunbreiðurnar úr gosopunum þremur ná nú saman. Hraun...
Posted by Veðurstofa Íslands on Miðvikudagur, 7. apríl 2021