Lögreglan á Suðurnesjum og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra eru stöðugt að meta stöðuna varðandi gasmengun á gosstöðvunum á Reykjanesi en mögulega þarf að loka svæðinu fyrr í dag vegna slíkrar mengunar.
Þetta segir Hjálmar Hallgrímsson, vettvangsstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is.
Spár gera ráð fyrir hægum vindi og frosti á gosstöðvunum í dag en þegar vindur er hægur getur uppsöfnun gass orðið hættuleg nærri þeim.
„Það er bara rólegt hérna hjá okkur og skítakuldi,“ segir Hjálmar við mbl.is núna á níunda tímanum. Einhverjir séu komnir að skoða gosið en það sé ekki margt fólk.
Hann segir svæðið allt varasamt núna, enda ekki jafn hvasst og var í gær.
„Við erum endalaust að endurmeta stöðuna, það er opið núna en það getur vel verið að eitthvað breytist. Ef við teljum svæðið hættulegt þá bara lokum við,“ segir Hjálmar.