Forval VG í Suðurkjördæmi hafið

Frambjóðendur í forvali VG í Suðurkjördæmi.
Frambjóðendur í forvali VG í Suðurkjördæmi. Ljósmynd/Samsett

Netforval Vinstri grænna í Suðurkjördæmi hófst á miðnætti og stendur yfir til klukkan 17 á mánudag. Átta frambjóðendur hafa boðið sig fram og er kosið um fimm efstu sætin.

Hart er barist um oddvitasætið; Almar Sigurðsson ferðaþjónustubóndi, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarmaður, Hólmfríður Árnadóttir, menntunarfræðingur og skólastjóri, Kolbeinn Óttarsson Proppé alþingismaður og Róbert Marshall leiðsögumaður sækjast öll eftir fyrsta sætinu. 

Þá eru líka í framboði Sigrún Birna Steinarsdóttir, háskólanemi, Anna Jóna Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Helga Tryggvadóttir, náms- og starfsráðgjafi.

Niðurstöður forvalsins verða kynntar á mánudagskvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert