Íslendingar bjartsýnir til framtíðar

Íslendingar hafa miklar væntingar til þróunar til náinnar framtíðar.
Íslendingar hafa miklar væntingar til þróunar til náinnar framtíðar. mbl.is/Golli

Væntingar almennings til atvinnu- og efnahagsástandsins hafa aukist töluvert á síðustu mánuðum. Ekki hafa fleiri haft meiri væntingar til stöðunnar eftir sex mánuði síðan árið 2003. Þetta eru niðurstöður væntingavísitölu Gallups sem sagt er frá í Hagsjá Landsbankans.

Þar segir að nokkur fylgni virðist vera milli væntinga almennings og einkaneyslu sem gefi tilefni til að ætla að einkaneysla gæti orðið nokkuð kraftmikil á komandi misserum, sér í lagi ef vel tekst til við bólusetningar.

Væntingar almennings til næstu sex mánaða hafa haldist nokkuð vel í hendur við bylgjur kórónuveirufaraldursins hér á landi. Þannig minnkuðu væntingar talsvert í upphafi síðasta árs þegar faraldurinn hófst, glæddust á ný síðasta sumar og lækkuðu svo um haustið.

Væntingavísitalan stendur nú í 149 stigum, en í því felst að um 75% aðspurðra eru bjartsýn til framtíðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert