Lögreglan á Suðurnesjum opnar fyrir aðgengi fólks að gossvæðinu á hádegi en það verður vaktað af lögreglu og björgunarsveitum til miðnættis. Lokað verður inn á svæðið klukkan 21, rýming hefst klukkan 23 og verður lokið fyrir miðnætti.
Spáð er suðaustan og sunnan 5-10 m/s á gosstöðvunum og snjókomu með köflum. Hiti við frostmark. Áttin er þó suðvestlægari rétt ofan við jörð og búast má við gasmengun á norðanverðum Reykjanesskaga og á höfuðborgarsvæðinu. Sunnan 5-10 m/s og slydda eða rigning með morgninum, en suðaustan 8-13 eftir hádegi. Hiti 2 til 5 stig, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Gasmengunina ætti því að leggja yfir Vatnsleysuströnd í fyrstu, en síðdegis yfir svæðið frá Vogum að Reykjanesbæ og vestur að Höfnum. Snýst í austan og norðaustan 5-10 og styttir upp í kvöld, en mengunin berst þá í átt til Grindavíkur.
Kort sem sýnir það svæði þar sem fólk getur verið í bráðri hættu vegna skyndilegra atburða sem geta orðið við gosstöðvarnar. Innan hættusvæðisins er allra mesta hættan á opnun fleiri gossprungna án fyrirvara og því getur fylgt skyndilegt og hratt hraunflæði sem erfitt er að forðast. Utan þessa svæðis eru einnig aðrar hættur sem fylgja framrás hrauns og uppsöfnun gass.
Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir kl. 12 í dag hafi það í huga að takmarkað eftirlit viðbragðsaðila er á svæðinu. Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Þá hefur gönguleið reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.
Svæðið er ekki fyrir lítil börn, þau eru viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eldri eru og því berskjölduð fyrir skaðlegum lofttegundum. Þeir sem klæða sig ekki vel hafa ekkert inn á svæðið að gera, segir í tilkynningu frá lögreglu.