Á morgun, þriðjudaginn 13. apríl, verður Pfizer-bólusetning í Laugardalshöll fyrir heilbrigðisstarfsfólk utan stofnana. Ekki eru staðfestir fleiri bólusetningardagar í þessari viku að því er fram kemur á covid.is.
Líkt og fram kom á mbl.is í gær var um 60 prósent mæting var í bólusetningu heilbrigðisstarfsfólks utan stofnana við Covid-19 á föstudaginn, við fyrstu boðun. Grípa þurfti til þess að bjóða nokkrum sinnum til viðbótar í bólusetningu til að nýta bóluefni sem hafði verið blandað svo það færi ekki til spillis.
Boðað er eftir aldursröð þar sem byrjað er á þeim elstu í hópnum. Aðrir í hópnum verða boðaðir í aldursröð næstu vikur.
Meðal þeirra sem fengu boð í síðustu viku eru læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, þroskaþjálfar og og fleiri sem ekki eru í klínisku starfi heldur hafa snúið til annarra starfa eða eru hættir störfum.
„Einstaklingar í þessari stöðu voru hvattir til að þiggja ekki þetta fyrsta boð í bólusetningu gegn Covid-19 heldur hugleiða að hver skammtur sem er notaður fyrir hóp 5 tefur lítillega bólusetningar einstaklinga með áhættuþætti fyrir alvarlegri Covid-19-sýkingu undir sextugu. Það kemur að því að allir sem vilja bólusetningu geti fengið hana, en við höfum ekki bóluefni fyrir alla fyrr en síðar á árinu,“ segir á vef embættis landlæknis.
Meðal þeirra sem afþökkuðu boðið var Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir enda segist hann ekki vera í beinum tengslum við sjúklinga. „Við viljum reyna að bólusetja fólk fyrst sem við teljum geta farið illa út úr Covid-sýkingunni ef það smitast. Eins fólk sem er í áhættu að smitast. Er útsett þar sem það vinnur með sjúklingahópa og svo framvegis,“ segir Þórólfur í samtali við mbl.is í gær.
„Heilbrigðisstarfsmenn sem ekki eru að sjá sjúklinga eru í sjálfu sér ekki í áhættuhóp og þar undir fell ég,“ segir Þórólfur og segir að þess vegna hefði verið biðlað til þessara einstaklinga um að afþakka bólusetningu að svo komnu máli og bíða þangað til kemur að þeim síðar.
Á föstudaginn fóru ýmsir eftir ráðleggingum embættis landlæknis og mættu ekki í bólusetningu þannig að undir lok dags varð ljóst að til var blandað bóluefni sem myndi eyðileggjast ef það yrði ekki nýtt strax.
Eðlilega sinntu margir kallinu og fengu óvænt bólusetningu en þeir sem höfðu afþakkað sátu eftir að eigin sögn með sárt ennið. Spurður út í þetta segir Þórólfur, að að sjálfsögðu hafi bóluefnið verið notað.
„Auðvitað verður að nota bóluefni sem er tilbúið og mun eyðileggjast ef það er ekki notað strax. Því það gagnast allri heildinni að bólusetja sem flesta. Alltaf geti komið upp sú staða að yngra fólk sé bólusett þegar þessi staða kemur upp í stað eldri en við því er ekkert að gera. Það er mjög erfitt að eiga við þetta þegar fólk, sem er að bólusetja, gerir ráð fyrir ákveðnum fjölda en síðan mæta ekki allir í bólusetningu og það situr uppi með afgangsbóluefni sem er að renna út. Þá verður að kalla í fólk og hvetja það til að mæta í bólusetningu,“ segir Þórófur og bætir við að þessi hópur heilbrigðisstarfsmanna sem afþakkaði verði kallaður inn að nýju og engin hætta á að hann fái ekki bólusetningu.
Í vikunni hefur verið staðfest að hingað berist 16.380 skammtar af bóluefni og er þetta í fyrsta skipti sem Janssen-bóluefnið kemur hingað til lands. Von er á 9.360 skömmtum af Pfizer, 2.640 skömmtum af Moderna, 1.980 skömmtum af AstraZeneca og 2.400 skömmtum af Janssen.
Aftur á móti kemur minna magn bóluefnis í næstu viku því þá er aðeins von á 9.360 skömmtum af Pfizer og 3.300 skömmtum af AstraZeneca.
Síðustu vikuna í apríl er síðan von á 25.400 skömmtum af bóluefni. Von er á 9.360 skömmtum af Pfizer, 3.960 skömmtum af Moderna, 9.680 skömmtum af AstraZeneca og 2.400 skömmtum af Janssen.
Samkvæmt covid.is hafa 61.134 einstaklingar fengið að minnsta kosti einn skammt en 28.056 eru nú fullbólusettir á Íslandi.